
Foreldrar eru
fyrirmyndir
Ráð #4 … til umhugsunar:
Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir og í lykilstöðu í að fræða börn sín um notkun ávana- og vímuefna og afleiðingar af neyslu þeirra. Viðhorf og hegðun foreldra hafa einnig mikil áhrif á ávana- og vímuefnaneyslu barna.
Börnum er mikilvægt að foreldrarnir tali um hlutina af hreinskilni, án þess að vera með ásakanir og æsing. Mikilvægt er að ræða málin af yfirvegun og forðast reiði og ásakanir. Með því að hlusta vel á það sem börnin hafa að segja og reyna að setja sig í spor þeirra er auðveldara að koma á gagnkvæmum skilningi og sameiginlegri niðurstöðu.
Umgengni foreldra við áfengi er fordæmisgefandi fyrir börnin. Ábyrg hegðun foreldra, og samræmi á milli þess sem þeir segja og gera, skiptir miklu máli. Með því að drekka í óhófi gefa foreldrar börnum sínum til kynna að það sé sjálfsagður máti. Foreldrar sem skemmta sér án áfengis með börnum sínum eru jákvæð fyrirmynd. Það er gott að hafa í huga að það sem við gerum vegur þyngra en það sem við segjum.
Mikilvægt er að koma því skilmerkilega til skila hvað foreldrar vilja þegar ávana- og vímuefni eru annars vegar. Verum óhrædd við að koma því skýrt til skila að við viljum ekki að börnin okkar drekki áfengi. Skýr afstaða foreldra gegn ávana- og vímuefnaneyslu barna er þeim t.d. mikilvæg vörn gegn hópþrýstingi félaganna.
Það er mikilvægt að börn og unglingar skilji hvers vegna munur er á áfengisneyslu fullorðinna og áfengisneyslu barna og ungmenna og hvers vegna aðrar reglur gilda um hana. Börn og ungmenni eru í sérstakri áhættu vegna reynsluleysis síns og þroskaleysis. Ölvun unglinga er því ekki sambærileg við ölvun fullorðinna af þessum sökum.
Unglingar sem eru að taka út andlegan, líkamlegan og félagslegan þroska skaðast frekar af neyslu ávana- og vímuefna en þeir fullorðnu. Höfum einnig hugfast að börn og unglingar sem byrja snemma að drekka leiðast frekar út í óhóflega neyslu og önnur ávana- og vímuefni. Því lengur sem tekst að fresta því að börnin hefji áfengisneyslu þeim mun minni líkur eru almennt á að illa fari.
Það er mikilvægt að börnin skilji að þau sjónarmið sem þar eru að baki byggjast á væntumþykju og umhyggju fyrir velferð þeirra og framtíð. Það er ekkert athugavert við það að foreldrar banni börnum sínum áfengisneyslu og fylgi því eftir. Í slíkri afstöðu felst umhyggja fyrir velferð barnsins en ekki óeðlileg afskipti af lífi þeirra og ákvörðunum.
VIÐ HVETJUM TIL ÁBYRGÐAR OG ÁRVEKNI Á HÁTÍÐUM SUMARSINS





Reykjavík
A. Margeirsson ehf
Aðalvík ehf
Afreksvörur
Arctic Trucks
Ísland ehf
Auðmerkt ehf
ÁM-ferðir ehf
Árbæjarapótek ehf
Ásbjörn Ólafsson ehf
B M Vallá ehf
Barnalæknaþjónustan ehf
Bifreiðaverkstæði Svans ehf
Bílalíf, bílasala
Bílamálun
Sigursveins Sigurðssonar
Bókhaldsstofa Haraldar slf
Brim hf
Danica sjávarafurðir ehf
Dómkirkjan í Reykjavík
Efling stéttarfélag
Fastus ehf
Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
G. M Verk ehf
GÁ húsgögn ehf
Geiri ehf,
umboðs- og heildverslun
Gjögur hf
Gray Line Iceland
Guðmundur Arason ehf,
smíðajárn
Hagi ehf-Hilti
Hamborgarabúlla Tómasar
Haninn ehf, veitingastaður
HGK ehf
Hókus Pókus ehf
Hótel Leifur Eiríksson ehf
Hótel Óðinsvé
Höfðakaffi ehf
Ísfrost ehf
K. Pétursson ehf
Kortaþjónustan hf
Lagnalagerinn ehf
Landsnet hf-www.landsnet.is
Landssamtök lífeyrissjóða
Lifandi vísindi
Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu
Löndun ehf
MD vélar ehf
Míla ehf
Nasdaq Iceland
Nasdaq
verðbréfamiðstöð hf
Nexus afþreying ehf
Nýi ökuskólinn ehf
Orkuvirki ehf
Ósal ehf
Poulsen ehf
Pósturinn
Reykjavíkurborg
Sjúkraþjálfun Íslands ehf
Sólon Bistro
THG Arkitektar ehf
Toppfiskur ehf
Topplagnir ehf
Umslag ehf
Verkfræðistofan
Skipatækni ehf
Vernd, fangahjálp
Verslunarskóli Íslands
Verslunin Kvosin
Vélvík ehf
VSÓ Ráðgjöf ehf
Vörubílastöðin
Þróttur hf
Ökuskólinn
í Mjódd ehf
Seltjarnarnes
Falleg gólf-parketþjónusta frá 1984
Kópavogur
ALARK arkitektar ehf
Allianz á Íslandi hf
Á. Guðmundsson ehf
Bíljöfur ehf
BYKO
Dressmann á Íslandi ehf
Fjölvirki ehf
Hákon Bjarnason ehf
Hjörtur Eiríksson sf
Hvísl ehf
Ingi hópferðir ehf
Mannrækt og menntun ehf
Pottagaldrar ehf
Rafmiðlun hf
Sports Direct
Zenus sófar
Zeta Film
Garðabær
66°Norður
Garðabær
Icewear
Marás vélar ehf
S.S. Gólf ehf
Öryggisgirðingar ehf
Hafnarfjörður
Ás, fasteignasala ehf
Betri Bygging ehf
Dekkjasalan ehf
Efnamóttakan hf
G.S. múrverk ehf
Hlaðbær-Colas hf, malbikunarstöð
Hvalur hf
SIGN ehf, skartgripaverkstæði
Stálnaust ehf
Sæli ehf
Tannlæknastofa Harðar V Sigmarssonar sf
Víðir og Alda ehf
Álftanes
Dermis Zen slf
Reykjanesbær
DMM Lausnir ehf
IGS ehf Keflavíkurflugvelli
M² Fasteignasala & Leigumiðlun
Nesraf ehf
Toyota Reykjanesbæ
Grindavík
Einhamar Seafood ehf
Marver ehf
Sílfell ehf
VOOT Beita
Þorbjörn hf
Sandgerði
A. Margeirsson ehf
Vélsmiðja Sandgerðis ehf
Mosfellsbær
Elektrus ehf
löggiltur rafverktaki
Fagverk verktakar sf
Hýsi – Merkúr hf
Kjósarhreppur
LEE rafverktakar ehf
Mosfellsbakarí
Akranes
Garðar Jónsson,
málarameistari
Grastec ehf
Straumnes ehf, rafverktakar
Vélsmiðja Ólafs
R Guðjónssonar ehf
Borgarnes
Kvenfélag Stafholtstungna
Skorradalshreppur
Ólafsvík
Litlalón ehf
Hellissandur
KG Fiskverkun ehf
Búðardalur
Dalabyggð
Reykhólahreppur
Þörungaverksmiðjan hf
Reykhólum
Ísafjörður
Ferðaþjónustan í Heydal
Sjúkraþjálfun Vestfjarða
Bolungarvík
Bolungarvíkurkaupstaður
Endurskoðun Vestfjarða ehf
Glaður ehf
Sigurgeir G. Jóhannsson ehf
Flateyri
Sytra ehf
Patreksfjörður
Fiskmarkaður Patreksfjarðar ehf
Verslunin – bakaríið Albína
Tálknafjörður
Þórsberg hf
Hvammstangi
Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar sf
Blönduós
Átak ehf
Skagaströnd
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf
Sauðárkrókur
Skinnastöðin hf
Varmahlíð
Akrahreppur Skagafirði
Akureyri
Amaro heildverslun
Gróðrarstöðin Réttarhóll ehf
Höldur ehf, bílaleiga
Pípulagningaþjónusta Bjarna F Jónassonar ehf
Rafeyri ehf
Rafmenn ehf
Raftákn ehf – Verkfræðistofa
Sjúkrahúsið á Akureyri
Skútaberg ehf
Tannlæknastofa Árna Páls Halldórssonar
Túnþökusala Kristins ehf
Grímsey
Sigurbjörn ehf, fiskverkun
Ólafsfjörður
Árni Helgason ehf, vélaverkstæði
Húsavík
Heiðarbær
Norðurþing
Trésmiðjan Rein ehf
Mývatn
Mývetningur, íþrótta- og ungmannafélag
Egilsstaðir
Bílamálun Egilsstöðum ehf
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf
Skrifstofuþjónusta Austurlands ehf
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður
Reyðarfjörður
Hárstofa Sigríðar ehf
Eskifjörður
Egersund Ísland ehf
Neskaupstaður
Síldarvinnslan hf
Stöðvarfjörður
Brekkan – Verslun og veitingastofa
Höfn í Hornafirði
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf
Rósaberg ehf
Selfoss
Veitingastaðurinn Menam
Hveragerði
Hveragerðiskirkja
Ölfus
Eldhestar ehf
Flúðir
Flúðasveppir ehf
Hella
Hestvit ehf
Trésmiðjan Ingólfs ehf
Hvolsvöllur
Byggðasafnið í Skógum
Ferðaþjónustan Hellishólum ehf
Rafverkstæði Ragnars ehf
Vík
Hrafnatindur ehf
Kirkjubæjarklaustur
Geirland ehf, hótel og veitingarekstur
Icelandair Hótel Klaustur
Vestmannaeyjar
Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf
Ós ehf
Rannsóknarþjónustan V.M.
Tvisturinn ehf
Útgerðarfélagið Már ehf